Bræðslumenn boða verkfall - aðgerðarhópur SGS kemur saman
Vinnustöðvun var samþykkt með 77,8 % atkvæðisbærra félagsmanna í Drífanda í Vestmannaeyjum og 75,4% atkvæðisbærra félagsmanna í AFLi á austurlandi. Vinnustöðvunin hefst kl 19:30 þann 15. febrúar n.k. og er ótímabundin. Vinnustöðvunin er boðuð til að knýja á um gerð kjarasamnings um störf félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem að henni standa í fiskimjölsverksmiðjum á félagssvæði þeirra. Einnig samþykktu starfsmenn í fiksimölsveksmiðjunni á Akranesi verkfall í fiskimjölsverksmiðju HB Granda á sama tíma, en þar samþykktu 80% atkvæðisbærra félagsmanna verkfallið.
Aðgerðarhópru samninganefndar Starfsgreinasambandsins kemur sama til fundar í dag til að ræða mögulegar aðgerðir til að knýja á um gerð aðalkjarasamnings sambandins við Samtök atvinnulífsins. Kjaraviðræðurnar við Samtök atvinnulífsins eru í strandi hjá ríkissáttasemjara, eftir útspil Samtaka atvinnulífsins að vilja ekki semja við launafólk nema ríkið gangi að kröfum þeirra í málefnum sjávarútvegsins eins og það er kallað.