Translate to

Fréttir

Breyting á reglum um námsstyrki

Frá starfsfræðslunámskeiði á vegum Verk Vest Frá starfsfræðslunámskeiði á vegum Verk Vest

Starfsfræðslusjóðirnir Landsmennt og Sveitamennt sem Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að hafa ákveðið að auka við réttindi frá og með 1.júlí næst komandi. Breytingin felst í viðbót við einstaklingsstyrki fyrir eitt samfellt námskeið eða nám sem fara þá eftir reglum sjóðsins. Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér sinn rétt síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk allt að kr.132.000 fyrir eitt samfellt námskeið/nám. Þessar breytingar taka gilda frá og með 1.júli 2010 og gilda fyrir námskeið/nám sem hefjast eftir þann tíma. 

Deila