Breytingar á útgreiðslum styrkja vegna sumarleyfa
Vegna sumarleyfa starfsfólks þá verða breytingar á greiðslum sjúkra- og fræðslustyrkja.
Greiðslur verða 15. júlí n.k. og síðan ekki aftur fyrr en 15. ágúst.
Greiðslur á sjúkradagpeningum og dánarbótum verða óbreyttar.
Bendum á að í dagatalinu er að finna allar dagsetningar á útgreiðslum o.fl.