Translate to

Fréttir

Breyttar forsendur kjarasamninga gagnrýndar

Á formannafundi SGS sem haldinn er á Egilsstöðum var samþykkt að senda ályktun um þá stöðu sem komin er upp á vinnumarkaði vegna niðurstöðu gerðadóms. Ljóst er að ef forsendur almennra kjarasamninga eru brostnar og ef ekkert verður að gert munu samningar losna í febrúar 2016.

Ályktun formannafundar Starfsgreinasambands Íslands um kjaramál

Formannafundur SGS haldinn á Egilsstöðum 11. september 2015 telur brýnt  að endurmeta forsendur þeirra kjarasamninga á almenna markaðnum sem undirritaðir voru í maí síðastliðnum í ljósi niðurstöðu gerðardóms. Dómurinn setur ný viðmið á vinnumarkaði sem eru í verulegu ósamræmi við þau viðmið sem samninganefnd Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagið sömdu um.

Í kjarasamningunum frá því í maí var það almenn og víðtæk krafa í samfélaginu að hækka bæri lægstu laun og lyft var grettistaki í þá átt við undirritun samninganna. Niðurstaða gerðadómsins er hins vegar sú að hækka ákveðna hópa háskólamenntaðs fólks hlutfallslega meira en gert var í almennu samningunum. Ekki er tekið tillit til samstöðu um hækkun lægstu launa né skattabreytinga í gerðardómnum. Það eru gríðarleg vonbrigði og lýsir algerum dómgreindabresti að gerðadómur hafi litið algjörlega framhjá þeim leiðbeiningum sem dómurinn átti að vinna eftir til að stuðla að stöðugleika.

Gerðir voru samningar á almennum markaði til þriggja og hálfs árs í maí en ef forsendur bresta eru þeir lausir í febrúar 2016 verði ekkert að gert fyrir þann tíma.

 

Deila