Translate to

Fréttir

Byggjum réttlátt þjóðfélag - tökum öll þátt í hátíðarhöldunum á 1. maí

1. maí kröfuganga á Ísafirði.  ljósmynd Páll Önundar. 1. maí kröfuganga á Ísafirði. ljósmynd Páll Önundar.
kjörorð dagsins kjörorð dagsins

1. maí

Byggjum réttlátt þjóðfélag og tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.

Á Ísafirði verður lagt af stað  í kröfugönguna frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Á Suðureyri verður lagt af stað frá Brekkukoti kl. 14:00 og gengið að sudlauginni þar sem hátiðarhöldin hefjast með boðsundi. Á Patreksfirði verða hátíðarhöld með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður í kaffi í félagsheimilinu. Þá verður að vanda haldið 1. Maí BINGÓ og eru vinningarnir veglegir að vanda, en meðal vinninga er vikudvöl í olofshúsi Verk Vest og helgardvöl í orlofsíbúð félagsins. 
Þá hvetur 1. maí nefnd stéttarfélaganna alla sem luma á kröfuspjöldum frá opnu fundunum á Silfurtorgi í vetur til að mæta með þau í gönguna, eða jafnvel búa til ný og mæta með þau.

Dagskráin á Ísafirði:

 Edinborg:

Ræðumaður dagsins

Matthildur Jónu og Helgadóttir feministi og framkvæmdastjóri.

 

Lúðrasveit tónlistaskólans

Stjórnandi Madis Maekalle.

 

Tónlistaratriði

Kristín Hálfdánardóttir frá Bolungarvík leikur á harmoniku.

 

Pistill dagsins

Guðný Harpa Henrýsdóttir.

 

Við heimtum aukavinnu!

Atriði úr þessari skemmtilegu sýningu sem Litli leikklúbburinn og Kómedíuleikhúsið setti upp í vetur. Sýningin er alþýðleg leik- og söngskemmtun byggð á ljóðum og lögum Jónasar og Jóns Múla Árnasona.

 

Kaffiveitingar í boði 1. maí nefndar  

í Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum.

 

Kvikmyndasýningar fyrir börn

í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00

 

Ljósmyndasýning í Edinborg

Skemmtilegar ljósmyndir úr mannlífinu í gegnum tíðina. Sýningin stendur í viku.


1.Maí Hátíðarhöld Suðureyri.

 

Kl: 14:00

  • Kröfuganga frá Brekkukoti.
  • Boðsund í Sundlaug Suðureyrar.
  • Kaffihlaðborð í Bjarnaborg
  • 1. Maí ávarp.
  • Árni á Vöðlum þenur Harmónikkuna
  • Söngur og tónlistaratriði barna.
  • Allir velkomnir - 1. Maí nefndin.

 

 

Deila