Translate to

Fréttir

Desemberuppbót 2021

Kjarasamningum samkvæmt fær starfsfólk greidda desemberuppbót þessa dagana, en skilyrði uppbótar má finna í viðeigandi kjarasamningi sem finna má á kjaravef Verk Vest. Hér eru upplýsingar um upphæðir og síðasta greiðsludag miðað við fullt starf:

  • Almennur vinnumarkaður: Kr. 96.000 sem greiðist í síðasta lagi 15. desember (flestir atvinnurekendur greiða þetta út með launum 30.nóv.)
  • Ríkisstarfsmenn: Kr. 96.000 sem greiðist 1. desember.
  • Starfsmenn sveitarfélaga: Kr. 121.700 sem greiðist 1. desember.
  • Kalkþörungaverksmiðjan Bíldudal kr. 119.379
  • Þörungaverksmiðjan Reykhólum kr. 141.661
  • Sjómenn: Sjómenn fá ekki desemberuppbót.

Hafir þú ekki fengið greidda desemberuppbót eða hafir efasemdir um að uppbótin sé rétt reiknuð má senda fyrirspurnir á postur@verkvest.is eða í síma 456 5190.

Deila