Desemberuppbót atvinnuleitenda
Vinnumálastofnun mun greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda þann 5. desember í samræmi við reglugerð sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur gefið út.
Rétt á desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember – 3. desember, samkvæmt tilkynningu.
Skilyrði og útreikningur á rétti til greiðslunnar verður með sama hætti og undanfarin ár. Tekið er mið af bótahlutfalli og fjölda mánaða á atvinnuleysisbótum. Full desemberuppbót er 53.647 krónur en greiðsla til hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta á árinu.
Verk Vest hvetur þá félagsmenn sem eru í atvinnuleit og eiga rétt á desemberuppbót að kanna rétt sinn hjá Vinnumálastofnun.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vef Vinnumálastofnunar.