Translate to

Fréttir

Einstaklingsstyrkir fræðslusjóða Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt hækka frá áramótum

Starfsfræðslusjóðirnir Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt hafa ákveðið að hækka hámark einstaklingsstyrkja frá og með 1. janúar 2018.  

Hámarksgreiðsla á ári fer úr kr. 75.000,- fyrir almennt nám í kr. 100.000,-

Þriggja ára uppsafnaður styrkur hækkar úr kr. 225.000,- í kr. 300.000,- fyrir eitt samfellt nám

Hámarksstyrkur vegna námskeiða sem falla undir frístunda/tómstundanámskeið munu hækka í kr. 30.000,- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.

Þá er athygli vakin á því að sérstakur styrkur vegna meiraprófs fellur undir almenna einstaklingsstyrki og verður því áfram kr. 100.000.-

Athygli er vakin á að umræddar breytingar sem taka gildi 1. janúar 2018 eiga við um nám sem hefst frá og með þeim tíma.

Aðrar reglur sjóðanna verða óbreyttar og gilda samhliða fyrrgreindum breytingum.

Deila