Enn hækkar matarkarfan í verði !
Hinn almenni launamaður fer ekki varhluta af stöðugum hækkunum matvara og annarra nauðsynja til reksturs heimila. Ýmis útgjöld eins og viðhald húsnæðis hafa aukist umtalsvert svo ekki sé minnst á rekstrargjöld heimilisbílsins. Samkvæmt nýjustu úttekt verðlagseftirlitsins á vörukörfu ASÍ þá nemur hækkunin um 35% frá því í apríl á síðasta ári. Á þessu sama tímabili hefur hækkunin orðið mest í lágvöruverðsverslununum eða 30 - 35%. Nánar er fjallað um þessa hækkun og þær forsendur sem gefnar eru við útreikning á heimasíðu ASÍ.