Translate to

Fréttir

Er ríkisstjórnin traustur samningsaðili?

Reiði almennings gagnvart stefnulausri ríkisstjórn stigmagnast dag frá degi. Stöðugt bætast nýjar upplýsingar í sarpinn um að stjórnvöld vissu eða máttu vita hvert stefndi með ofvöxnu blöðrubankana, en aðhöfðust ekki, létu reka á reiðanum. Enginn axlar ábyrgð. Forkólfar bankanna og ,,aðaleigendur" léku sér að sparifé almennings og lífeyrissjóða, innanlands og utan, með blekkingum og ábyrgðarlausum pappírsviðkiptum innherja til að slá ryki í augu fólks, svíkja og pretta. Efnahagslífið keyrði í þrot, eða svo notuð séu orð Willem H. Buiter, ,,engin virk löggjöf hafi verið til staðar til að hefta vöxt bankanna." Atvinnulífið hefur lamast með tilheyrandi atvinnu- og vonleysi fólks. Þeirri öfugþróun verður að snúa við.

Viðræður um endurnýjun kjarasamninga milli aðila vinnumarkaðarins eru hafnar. Að þeim viðræðum verður ríkisvaldið að koma. Það er hins vegar vandséð hvernig ríkisstjórn sem rúin er trausti almennings geti komið að kjaraviðræðum, svo mark sé á takandi. Engu að síður er aldrei mikilvægara en nú að traust ríkisstjórn með skýra framtíðarsýn um það hvernig við eigum að vinna okkur úr vandanum komi að því borði. Er ríkisstjórnin traustur samningsaðili?


Sk. Th.

Deila