Translate to

Fréttir

Er sumarið loksins komið ?

Jónas Magg, Maggúdd og Gunnar Veturliða ræða málin Jónas Magg, Maggúdd og Gunnar Veturliða ræða málin
Ánægðir með veðrið en ekki verðlagið ! Ánægðir með veðrið en ekki verðlagið !

Eftir nokkuð umhleypingasama tíða að undanförnu hefur veðrið heldur betur leikið við menn og málleysingja á Vestfjörðum þessa dagana.  Sól og blíða gleðja jafnan þá sem háðir eru veðrinu við störf sín, en kvelja þau okkar sem þurfa að hafast við innandyra. Útibekkir félagsins eru jafnan vinsæll viðkomustaður bæjarbúa, bæði til að sleikja sólina og til að ræða málefni líðandi stundar, eins og þessir herramenn kusu að gera. Voru hækkanir matvöru og dýrtíð aðal umræðuefnið ásamt því hvernig staðan væri með margumrædda olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum. Ekki náðist niðurstaða í umræðurnar á þessum rökstólum frekar en annarsstaðar.

Deila