Samkvæmt ákvæðum kjarasamninga sjómanna milli Verk Vest og LÍÚ þá skulu fæðispeningar endurskoðaðir árlega þann 1. júní miðað við matvörulið
vísitölu neysluverðs sem birt er af Hagstofu Íslands í maí ár hvert. Vísitala matvöruliðar neysluvísitölunnar var 188,19 stig í
maí 2011 en var komin í 200,64 stig í maí 2012. Hækkunin er 6,62%. Samkvæmt
framansögðu hækka því fæðispeningar til sjómanna um 6,62% frá 1. júní 2012. Nýja kaupgjaldskrá má finna
hér.