Ferð á Reykhóla á laugardaginn
Dagsferð fyrir félagsmenn VerkVest og fjölskyldur þeirra verður farin á Reykhóla 21. júní n.k. Lagt verður af stað með rútu frá Ísafirði kl. 9:00. Ýmislegt áhugavert verður skoðað á Reykhólum, m.a. Saltverksmiðja Norðursalts, Þörungaverksmiðjan og þaraböðin. Einnig er stefnt á að fara bátsferð í Skáleyjar. Og er víst mikil upplifun að fara þangað. Áætluð heimkoma til Ísafjarðar um kl. 22:00 - Verð kr. 9.900- (Rúta, nesti, bátsferð, leiðsögn og kvöldverður)
ATH: Takmarkaður sætafjöldi!
Skráning hjá VerkVest í síma 456 5190 fyrir 19. júní.