Translate to

Fréttir

Fjölmenn hátíðahöld 1. maí

Kaffihlaðborðið í Guðmundarbúð var girnilegt... Kaffihlaðborðið í Guðmundarbúð var girnilegt...
..enda töluvert á sig lagt til að nálgast það. ..enda töluvert á sig lagt til að nálgast það.
Svo er að næra sig eftir kröfugöngu og biðröð. Svo er að næra sig eftir kröfugöngu og biðröð.
Sundlaugin á Suðureyri nýtist vel við hátíðahöld 1. maí. Sundlaugin á Suðureyri nýtist vel við hátíðahöld 1. maí.
Súgfirðingar syngja í kröfugöngunni, væntanlega Internationalinn. Súgfirðingar syngja í kröfugöngunni, væntanlega Internationalinn.
Súgfirðingar fara ekki endilega troðnar slóðir í kröfugerð. Súgfirðingar fara ekki endilega troðnar slóðir í kröfugerð.
Drjúgur hluti íbúa á Suðureyri hefur greinilega mætt. Drjúgur hluti íbúa á Suðureyri hefur greinilega mætt.
Einfalt og gott. Einfalt og gott.
Fjölmenni tók þátt í kröfugöngu og hátíðahöldum stéttarfélaganna á Ísafirði á baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Aðalræðumaður dagsins var Sigurður Bessason formaður Eflingar. Sigurður kom víða við í ágætri ræðu sinni og minnti í upphafi á að Vestfirðingar hafa ein gjöfulustu fiskimið veraldar við túnfótinn. Elsa Arnardóttir forstöðumaður Fjölmenningarseturs flutti pistil um innflytjendur og fjölmenningarsamfélagið.
Tónlistarflutningur var í höndum Lúðrasveitar tónlistarskólans undir stjórn Madis Maekalle, Selvadore Rähni og Tuuli Rähni og nemenda Menntaskólans á Ísafirði, sem fluttu atriði úr leikritinu Þrek og tár.
Kaffiveitingar voru í Guðmundarbúð að ræðuhöldum og tónlistarflutningi loknum og var þar afar fjölmennt, en kvenfélagskonur sáu um kaffi og meðlæti af alkunnum myndarskap.
Kvikmyndasýningar fyrir yngstu kynslóðina voru vel sóttar.
Ræða Sigurðar er hér.

Á Suðureyri var þátttaka í kröfugöngu og hátíðahöldum engu síðri en á Ísafirði, miðað við höfðatölu. Að lokinni kröfugöngu var boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar og síðan kaffiveitingar í Félagsheimili Súgfirðinga, þar sem hlýtt var á söng og hljóðfæraslátt. Ræðumaður dagsins var Lilja Rafney Magnúsdóttir og mæltist henni vel að vanda.
Ræðu Lilju má lesa hér.
Deila