Translate to

Fréttir

Fjölskylduferð á Hesteyri 11. júní 2011

Dagsferð fyrir félagsmenn Verk Vest og fjölskyldur þeirra til Hesteyrar laugardaginn 11. júní nk.
Lagt verður af stað frá Ísafirði kl. 10:00 með Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar. Ætlunin er að dvelja á Hesteyri í nokkrar klukkustundir. Gengið verður um svæðið undir leiðsögn, grillaðar ljúfengar kræsingar og borðað saman.
Áætluð heimkoma milli kl. 17:00 – 18:00  

Verð fyrir fullorðna kr. 7.500- 
börn 6-12 ára kr. 2.500-
Frítt fyrir yngri

Innifalið: Ferðir, matur og leiðsögn. Takmarkaður fjöldi!
 
Skráning hjá Verk Vest í síma 456 5190  fyrir 7. júní.
Deila