Fjölskyldugleði VerkVest í Raggagarði á laugardaginn
Fjölskyldugleði Verkalýðsfélags
Vestfirðinga verður haldin í Raggagarði laugardaginn 30. júní.
Tónlist, gleði og gaman.
Formleg dagskrá hefst kl. 15:00
Tónlistaratriði, Eggert Nielson og The Cutaways.
Farið verður í allskonar hópleiki og ekki má gleyma frábæru leiktækjunum í garðinum.
Boðið verður uppá grillaðar pylsur og gos og allir fá VerkVest blöðru.
Formlegri dagskrá lýkur kl. 17:00