Formannafundur ASÍ
Miðvikudaginn 28. október verður formannafundur ASÍ haldinn í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn í sal Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða. Reglulegir formannafundir ASÍ eru haldnir annað hvert ár, þ.e. þau ár sem þing ASÍ eru ekki haldin. Til fundarins koma formenn allra 50 aðildarfélaga Alþýðusambandsins ásamt formönnum deilda í blönduðum félögum. Verk Vest á fjóra fulltrúa á fundinum þá Finnboga Sveinbjörnsson, formann Verk Vest, Finn Magnússon, formann verslunardeildar, Guðjón Kr. Harðarson, formann Iðnaðardeildar og Sævar Gestsson, formann Sjómannadeildar.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
09:30 Skráning og afhending fundargagna
10:00 Ávarp forseta ASÍ
Kynning á hagspá hagdeildar ASÍ
10:45 Kjara- og efnahagsmál og nýtt samningalíkan – staða og horfur
12:00 Hádegishlé
13:00 Reglugerð um bókhald og ársreikninga aðildarsamtaka ASÍ
13:30 Tillögur starfshóps um upplýsinga- og kynningarmál
14:15 EINN RÉTTUR – EKKERT SVINDL!
Aðgerðir gegn félagslegum undirboðum á vinnumarkaði
Framsögur/innlegg - Umræður
15:30 Önnur mál
Afgreiðsla ályktana
16:00 Áætluð fundarlok