Translate to

Fréttir

Formannafundur LÍV ósáttur við seinagang í kjaraviðræðum

Formannafundur LÍV, Landssambands ísl. verzlunarmanna, var haldinn í húsakynnum VR þann 22. apríl. Tilefni fundarins var staðan í kjaraviðræðum. Landssambandið lagði fram kröfugerð þann 13. febrúar sl. og hefur verið fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins nokkrum sinnum síðan.
Ljóst er að þeir fundir sem haldnir hafa verið hafa ekki skilað þeim árangri sem vænst var þrátt fyrir hófsama kröfugerð. Því var tekin ákvörðun um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara föstudaginn 17. apríl sl. og var fyrsti fundur haldinn með ríkissáttasemjara í gær þriðjudaginn 21. apríl.

Formannafundur LÍV lýsir yfir mikilli óánægju með þann seinagang sem verið hefur í viðræðum og þann litla vilja sem SA sýnir til þess að ná ásættanlegri niðurstöðu. Það er því nokkuð ljóst að til tíðinda muni draga innan skamms og að félög innan LÍV muni leita eftir heimildum til aðgerða til þess að bregðast við.  Ákveðið var að hvert félag myndi hefja vinnu við undirbúning aðgerða.

Deila