Translate to

Fréttir

Forseti ASÍ fundar á Vestfjörðum

Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands
Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands fundar með stjórnum aðildarfélaga á Vestfjörðum á Ísafirði í dag. Fundurinn í dag er liður í fundarferð forseta ASÍ með aðildarfélögum um allt land. Gera má ráð fyrir að kjara- og efnahagsmál verði mjög fyrirferðamikil á fundinum í dag, þá verður einnig farið yfir afmarkaðar tillögur að breytingum á skipulagi ASÍ. Meðal annarra mála sem væntanlega verða rædd eru samskifti ASÍ við ríkisstjórnina og SA á samningstímanum sem nú er að líða. Ekki er heldur ólíklegt að kröfugerð aðildarfélaganna vegna komandi kjarasamninga komi til tals auk hinnar klassísku Evrópuumræðu.  
Deila