Forusta sjómanna vill nýja björgunarþyrlu strax !
"Verði ekkert að gert strax varðandi þyrlukost Landhelgisgæslunnar er hætt við að hættuástand skapist fljótlega. Landhelgisgæslan á eina þyrlu og er með aðra til leigu til ársins 2014. Um næstu áramót fer önnur þyrlan í 3ja mánaða skoðun og verður þá aðeins ein þyrla tiltæk. Megin verkefni þyrlanna er að annast leit og björgun, en einnig sinna þær brýnum sjúkraflutningum og öðrum öryggistengdum verkefnum. Á 17 ára tímabili frá 1994 - 2010 hefur alls 1513 einstaklingum verið bjargað með þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þar af voru bjarganir á sjó alls 361 og um helmingur þeirra utan 20 sjómílna. Í um 71% tilvika er talið að notkun björgunarþyrlu hafi skipt sköpum við björgunina. Það er því lífsspursmál fyrir sjómenn að alltaf séu tiltækar þyrlur til björgunar þegar óhöpp verða.
Formannafundur SSÍ haldinn í Stykkishólmi dagana 21. og 22. okt. 2011 skorar því á innanríkisráðherra að tryggja að Landhelgisgæslan fái nú þegar a.m.k. tvær stórar þyrlur til viðbótar núverandi þyrluflota sínum til að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki við eftirlits og björgunarstörf."