Translate to

Fréttir

Fræðslu- og umræðufundur um loftslagsbreytingar og almannahag

LOFTLAGSBREYTINGAR OG ALMANNAHAGUR

Miðvikudaginn 14. maí kl. 08:00-10:15 á Grand Hótel Reykjavík


Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af mannavöldum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Alþjóðlegur samtakamáttur er eina leiðin til að vinna gegn þessari þróun og þar hefur verkalýðshreyfingin mikilvægu hlutverki að gegna. 


Umhverfisnefnd ASÍ efnir til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við þessari uggvænlegu þróun og um leið að horfa til framtíðar. 


Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík.


Dagskrá hefst stundvíslega kl. 08:30 og lýkur kl. 10:15
. Þátttökugjald er 2.500 krónur.

Vinsamlegast skráið þátttöku á fundinn hér.


Dagskrá:

8:00       Morgunverðarhlaðborð

8:30       SetningHeimir Janusarson, formaður umhverfisnefndar ASÍ

8:40       Stóra myndin – umhverfisleg sjálfbærni, fyrirtæki og starfsmenn

Lára Jóhannsdóttir, nýdoktor í viðskiptafræðideild HÍ og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Búnaðarbanka Íslands

9:00       Er siðlaust að menga? Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar á 21. öldinni

Þórunn Sveinbjarnardóttir, MA í hagnýtri siðfræði og fyrrverandi umhverfisráðherra

9:20       Umhverfis- og samfélagsábyrgð fyrirtækja

                Finnur Sveinsson, varaformaður Festu og sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum

9:45       Pallborðsumræður

Auk frummælanda taka þátt í pallborði:

Drífa Snædal, framkvæmdastóri SGS

Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ


Fundarstjóri:
Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags

Deila