Translate to

Fréttir

Framhalds-aðalfundur Verk Vest

Framhalds-aðalfundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Ísafirði, efstu hæð, þriðjudaginn 18. ágúst kl. 18:00.

Dagskrá:

  • Lagabreytingar
  • Reikningar félagsins lagðir fram
  • Reglugerðarbreytingar sjúkrasjóðs
  • Kosning formanns iðnaðardeildar
  • Kosning inn á þing ASÍ
  • Önnur mál

Við hvetjum félagsmenn til að mæta en gæta smitvarna og sýna varúð.

Áhugasömum félagsmönnum er boðið upp á að vera í fjarfundi.

Vinsamlega skráið þáttöku á postur@verkvest.is

Ársreikningur verður aðgengilegur á skrifstofu Verk Vest.

Deila