Translate to

Fréttir

Framkvæmdir í Svignaskarði á áætlun

Framkvæmdir við nýja sumarhúsið eru á áætlun og ekki annað að sjá en rúmt verði um félagsmenn í nýja húsinu. Búið er að glerja húsið og er verið að hefja vinnu við utanhússklæðningu. Þrátt fyrir risjótta tíð í vetur hafa ekki orði neinar tafir á verkinu og var gott hljóð í smiðunum. Þá hefur einnig verið ráðist í endurbætur á húsi nr. 9. Þar var m.a. skipt um parket, dyrakarmar lakkaðir og borðplata í eldhúsi endurnýjuð. Þannig að ekki ætti að væsa um félagsmenn sem dvelja í Svignaskarði í sumar.
Deila