Translate to

Fréttir

Fréttabréf ASÍ helgað kosningu um Icesave samning

Fréttabréf marsmánaðar er komið á vef ASÍ og er helgað þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.
Þar segir m.a.:

"Icesave-málið er flókið og því mikilvægt að skýra meginatriði þess á einfaldan og hlutlægan hátt. Fréttabréf marsmánaðar er alfarið helgað þessu stóra máli sem þjóðin mun greiða atkvæði um þann 9. apríl. Hér á eftir er meginefni samningsins reifað og varpað fram nokkrum lykilspurningum sem reynt er að svara í einföldu máli í því skyni að auðvelda kjósendum að kynna sér málið og taka afstöðu til þess. Enginn vafi er á því að niðurstaða þessa erfiða máls mun hafa mikil áhrif á hag launafólks um ókomin ár, svo mikil að fullyrða má að hér sé um að ræða einhverjar mikilvægustu kosningar um framtíð okkar sem fram hafa farið á síðari tímum. Það er því afar mikilvægt að við tökum þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 9. apríl og öxlum þannig ábyrgð á framtíð okkar, hvort sem við samþykkjum samninginn eða höfnum honum."
Tengill á Fréttabréfið. 

Deila