Translate to

Fréttir

Fréttatilkynning frá Sjómannasambandi Íslands

Um borð í Stefni ÍS. Um borð í Stefni ÍS.

Þegar viðræðum sjómanna og útvegsmanna var slitið s.l. föstudag setti Ríkissáttasemjari fjölmiðlabann á samninganefndarmenn. Ekki má ræða efnisatriði kjaraviðræðna né það sem skeður á fundum undir stjórn Ríkissáttasemjara.

Sáttaemjari hafði varla lokið máli sínu þegar SFS greinir frá bókun sem fulltrúar sjómanna settu fram. SFS gerir því skóna að bókunin sé í raun ný krafa frá sjómönnum. Og að sjómenn vilji ekki semja.

Með bókuninni eru fulltrúar sjómanna að leita eftir stuðningi SFS að leita skýringa á mismun á verði á uppsjávarfiski í Noregi og á Íslandi sem hefur verið talsverður og óútskýrður.

Þessi munur hefur orðið til þess að mikil tortryggni hefur skapast milli aðila. Bókunin er tilraun til að ná sátt við útgerðina um verðmyndun á uppsjávarfiski á Íslandi. Að halda því fram að þessi hafi ekki komið fram áður í samtali sjómana og útvegsmanna er útúrsnúningur. Síðasti samningur sem var felldur innibar nálgun á þessi mál í bókun um upplýsingaskyldu útgerða um hvernig verð myndast til sjómanna.

Með bókuninni er einungis verið að skerpa á þessum þáttum og að sjómenn og útvegsmenn vinni saman að því að skýra þennan mun og af hverju hann er tilkominn. Vel má vera að þær skýringar séu ásættanlegar en fyrst þarf að fá þær skýringar.

Ekki er annað að sjá en að SFS hafi gripið þessa tillögu fulltrúa sjómanna fegins hendi sem hálmstrá til að setja samningaviðræður í hnút og kenna fulltrúum sjómanna um að ósekju.

Deila