Fundur stjórnar og trúnaðarráðs - kjarasamningur og stöðugleikasátt
Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest er boðuð til fundar fimmtudaginn 25. júní kl. 20:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði. Mjög áríðandi er að sem flestir sjái sér fært að mæta vegna þess samkomulags sem nú er á borðinu í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld.
Fundarefni.
1. Staða í kjaraviðræðum
2. Stöðugleikasáttmáli
3. Önnur mál.