G.Ó.K átti lægstu tilboð í utanhúsklæðningar
Lægstu tilboð komu frá G.Ó.K. Húsasmíði ehf. í bæði verkin, og nam tilboð þeirra í Pólgötuna 75,4% af kostnaðaráætlun og var tilboð G.Ó.K. í Aðalgötuna 70,5% af kostnaðaráætlun. Farið var yfir tilboðin á stjórnarfundi Verk Vest í gær þar sem samþykkt var að ganga til samninga við G.Ó.K. Húsasmíði ehf. um framkvæmdirnar. Umsjón með framkvæmdunum verður í höndum Tækniþjónustu Vestfjarða.