Gaman saman í vinnunni
Starfsmenn VerkVest, Virk og Gildis voru með leynivinadaga í vikunni. Í dag klæddust svo allir jólaþema og komu með góðgæti að heiman og lögðu á jólakaffihlaðborð.
Misvel gekk að átta sig á því hver átti hvaða leynivin, enda mikil leynd og samsæriskenningar á hverju strái.
En eitt er víst að aðventan gefur okkur kærleik og skemmtilega daga.