Glæsilegt orlofshús tekið í notkun
Nú í vikunni var lokið við að koma fyrir húsbúnaði og áhöldum í húsi nr. 30 í Svignaskarði. Fyrstu dvalargestirnir koma á föstudaginn, 6. júní. Húsið er stórt og glæsilegt og væntanlega mun hvorki skorta þar rými né þægindi. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar verið var að gera klárt til útleigu.
Bent er á að vikan 13. - 20. júní er laus í báðum húsunum í Svignaskarði.
Við minnum einnig á lausar vikur annarsstaðar í bústöðum félagsins. Upplýsingar um lausar vikur er að finna undir Orlofshús og íbúðir í dálkinum til vinstri.
Enn eru laus sæti í Flateyjarferð 15. júní og Póllandsferð í haust, en skráningarfrestur rennur út 7. júní.