Translate to

Fréttir

"Góðar samgöngur eru lífæð hverrar byggðar"

Vestfirskur holuvegur Vestfirskur holuvegur

Verkalýðsfélag Vestfirðinga leggur sérstaka áherslu á að tengja norður- og suðursvæði Vestfjarða í einni framkvæmd með jarðgöngum og vegabótum.

Á meðan ástand vegamála á svæðinu er svo dapurlegt sem raun ber vitni, er einfaldlega ekki hægt að bjóða íbúum og atvinnulífi á suðurfjörðum Vestfjarða upp á að standa í eðlilegri samkeppni við aðra landshluta vegna vanþróaðara samgangna. Í þeim efnum eru vestfirskir vegir mörgum áratugum á eftir í uppbyggingu og þróun. Verkalýðsfélag Vestfirðinga ítrekar að bættar samgöngur eru ein af undirstöðunum þess að tryggja og viðhalda byggð á Vestfjörðum.

Krafa Vestfirðinga er skýr “Góðar samgöngur eru lífæð hverrar byggðar, bæði hvað varðar atvinnu og menningu, sem og öryggi og þróun byggðar.  Vegir á Vestfjörðum standast ekki þær kröfur sem gerðar eru til nútíma þjóðvega og uppfylltar hafa verið hjá öðrum.” Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga skorar á samgönguráðherra og þingmenn kjördæmisins að tafarlaust verði ráðist í gerð heilsárs vegbóta við alla þéttbýlisstaði á Vestfjörðum.

Deila