Translate to

Fréttir

Hækkun á mjólkurvörum í öllum verslunum í nýrri könnun ASÍ

Þegar bornar eru saman verðkannanir sem verðlagseftirlitið framkvæmdi í maí 2015 og nú í september, kemur í ljós að það eru töluverðar hækkanir á næstum öllum vöruflokkum. Af þeim vörum sem bornar eru saman má sjá einstöku lækkanir en það eru aðallega ávextir og grænmeti sem lækka í verði, en vöruflokkurinn sveiflast árstíðabundið í verði. 

Á þessu fjögurra mánaða tímabili hefur verð hækkað frekar en lækkað á þeim vörum sem til voru í báðum mælingum í flestum verslunum. En í verslunum Iceland og Hagkaupum hefur verð hækkað í um 60% tilvika, hjá Samkaupum-Úrvali, Nettó og Krónunni í um 50% tilvika og hjá Bónus í um 40% tilvika. Í Víði hefur verð hækkað og lækkað næstum jafnoft í samanburðinum og hjá Fjarðarkaupum hefur verð í um þriðjungi tilvika hækkað en oftast er umbeðin vara á sama verði og í seinustu mælingu. Í öllum verslunum er sama verð á milli mælinga á þó nokkrum vörum.

Verðhækkanir á mjólkurvörum, osti og viðbiti
Mjólkurvörur, ostur og viðbit hækkar töluvert í öllum verslunum. En algengast er að sjá um 4% hækkun á tímabilinu. Sem dæmi má nefna að 1 l. Fjörmjólk hefur hækkað um allt að 9%, 250 gr. af ósöltuðu smjöri frá MS hefur hækkað um 9-12% og 500 gr. af hreinu skyri frá KEA hefur hækkað um 2-7%.

Mismiklar hækkanir
Sem dæmi um mismikla hækkun á milli verslana má benda á að flatkökur frá Kökugerð HP Selfossi hafa hækkað um 3-10% í verði, mest hjá Nettó úr 123 kr. í 135 kr. en minnst hjá Samkaupum-Úrvali úr 155 kr. í 159 kr. Hálfur lítri af kók í dós hefur mest hækkað um 7% hjá Nettó og Iceland en minnst um 2% hjá Fjarðarkaupum. 

Nánar um verð í könnuninni hér.

Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miðast við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ frá 11.5.2015 og 5.10.2015. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem í gildi eru á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Hagkaupum, Víði og Iceland.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Deila