Hefur þú áhuga á að starfa í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga?
Ert þú félagsmaður í Verk Vest og vilt starfa í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga? Ef svo er endilega mættu á félagsfund Verk Vest sem verður haldinn á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 14. maí 2014 kl.18.00.
Dagskrá.
- Tillaga um fulltrúa til setu á aðalfundi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
- Breytingar í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
- Staðan í kjaraviðræðum
- Aðalfundur Verk Vest
- Orlofshús erlendis
- Orlofsferðir Verk Vest 2014
- Önnur mál
Boðið verður upp á léttan kvöldverð í upphafi fundar.