Translate to

Fréttir

Heimasíða Fjölmenningarseturs á átta tungumálum

Heimasíða Fjölmenningarseturs hefur verið uppfærð og er nú á átta tungumálum. Auk íslensku er búið að þýða hana yfir á ensku, pólsku, króatísku, tailensku, spænsku, rússnesku og litháísku. Á síðunni má finna upplýsingar um Ísland og íslenskt samfélag. Áhersla er lögð á að fólk sem flyst til landsins erlendis frá geti kynnt sér réttindi sín og skyldur og nálgast upplýsingar um hverdagslega hluti á auðveldan hátt.
Á síðunni er sérstakt sveitarfélagaviðmót þar sem finna má upplýsingar um helstu opinbera þjónustu í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Orðskýringar eru einnig á vefnum sem hafa nú verið þýddar á sjö tungumálum. Síðan getur nýst starfsfólki sveitarfélaga og stofnana til að aðstoða útlendinga því alltaf er hægt að sjá á íslensku hvað verið er að þýða í hverju tilviki.

Fjölmenningarsetur hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við innflytjendur sem búsettir eru á Íslandi.

Hjá Fjölmenningarsetri er hægt að leita eftir upplýsingum um margt er varðar daglegt líf á Íslandi, stjórnsýsluna og leita eftir aðstoð varðandi flutning til og frá Íslandi.

Fjölmenningarsetur starfrækir upplýsingasíma á pólsku, serbnesku/króatísku, taílensku, spænsku, litháísku og rússnesku.
Vefur Fjölmenningarseturs.

Deila