Helstu launahækkanir hjá Verk Vest 1. maí
Starfsfólk á almennum vinnumarkaði:
- Þann 1. maí hækka laun og launatengdir liðir um 4,5%.
- Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf skal vera 280.000 frá 1. maí 2017.
- Starfsmenn fá 46.500 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf.
- Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar í 10% 1. júlí 2017.
- Starfsmenn fá 86.000 kr. í desemberuppbót ekki síðar en 15. desember, miðað við fullt starf.
Starfsfólk sveitarfélaga:
- Þann 1. júní hækka laun um 2,5% auk þess sem launataflan breytist og hækkar um 1,7% að auki.
- Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf skal vera 280.000 frá 1. júní 2017.
- Starfsmenn fá 46.500 kr. í orlofsuppbót 1. maí, miðað við fullt starf.
- Starfsmenn fá 110.750 kr. í desemberuppbót þann 1. desember, miðað við fullt starf.
Starfsfólk ríkisins:
- Þann 1. júní hækka laun um 4,5%. Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf skal vera 280.000 frá 1. júní 2017.
- Starfsmenn fá 46.500 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf.
- Starfsmenn fá 86.000 kr. í desemberuppbót þann 1. desember, miðað við fullt starf.