Translate to

Fréttir

Hópuppsögn - Hólmadrangi lokað

Rækjuvinnsla O.N.Olsen um 1980 Rækjuvinnsla O.N.Olsen um 1980

Hólmadrangi lokað

Í gær, þann 14. júní var starfsfólki Hólmadrangs á Hólmavík tilkynnt um fyrirhugaða lokun hjá fyrirtækinu og að öllum starfsmönnum verði sagt upp störfum frá og með 30. júní nk. Um er að ræða 21 starfsmann í heildina, en þar af eru 18 félagsmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Burðarliður í atvinnulífi Hólmvíkinga í  58 ár

Nú lýkur 58 ára sögu rækjuvinnslu Hólmadrangs, en fyrirtækið hefur verið mikil stoð í atvinnulífi Hólmvíkinga þrátt fyrir að gengið hafi með skini og skúrum. Í október 2018 var Hólmadrangi veitt heimild til greiðslustöðvunar og síðar veitt heimild til nauðasamninga, en allt fór vel að lokum og hélt Hólmadrangur áfram vinnslu og starfsfólk hélt áfram að hafa atvinnu og nýr ráðandi hluthafi kom til sögunnar, Snæfell, dótturfélag Samherja. Því miður var það skammgóður vermir því nú hefur Hólmadrangur tilkynnt starfsfólki sínu um áformaða hópuppsögn og lokun fyrirtækisins eftir erfiðan rekstur undanfarinna ára.

Hvers má vænta

Boðað hefur verið til fundar þann 22. júní nk. þar sem verður yfirfarið hvort forsendur hafi breyst og skapað rými fyrir aðrar nálganir til að bregðast við vandanum auk þess sem áhersla verður lögð á samtal við starfsmenn. Þrátt fyrir að talað sé um sóknarfæri í fiskeldi og ferðamannaþjónustu er ekkert í hendi sem taki neitt við hjá því starfsfólki sem missir vinnuna um komandi mánaðamót. Ekki er hægt að vísa fólki til nágrannabyggðalaga til vinnu þar sem vetrarþjónusta Vegagerðarinnar yfir Steingrímsfjarðarheiði og Þröskulda er naumt skömmtuð.

Hvert er umfang þessa áfalls á Hólmavík

Í Strandabyggð búa 436 manns samkvæmt upplýsingum Hagstofu, en samkvæmt gögnum Verk Vest sem er deildaskipt stéttarfélag eru aðeins að jafnaði 103 félagsmenn starfandi á Hólmavík og starfa að jafnaði 64 þeirra fyrir ríki og sveitarfélög. Þetta skilur eftir að jafnaði 39 manns á vinnumarkaði sem er eru almennir launamenn á almennum vinnumarkaði sem spannar verkafólk, sjómenn, skrifstofu- og verslunarfólk, en af þessum fjölda starfa að jafnaði 19 hjá Hólmadrangi. Um næstu mánaðamót missir 48,72% þessa hóps vinnuna!

Samanburður við önnur landsvæði

Ekki varð nú meira upphlaup vegna þessa en svo að hvorki RÚV né Stöð 2 minntust á málið í kvöldfréttum í gærkvöld. Erfitt er að bera það áfall sem nú dynur yfir Hólmvíkinga saman við önnur landsvæði þar sem tölurnar yrðu svo ótrúlegar að fólk á erfitt með að ímynda sér slíkt, en setjum þetta í samhengi við fólksfjölda. Á Hólmavík missa 21 vinnuna af 436 íbúum, eða 4,82%. Ef við heimfærum það upp á Reykjavíkurborg eina og sér jafngildir það því að 6.828 manns myndu missa vinnuna, og ef við heimfærum það upp á höfuðborgarsvæðið í heild jafngildir það því að 12.062 myndu missa vinnuna. Það má í það minnsta gefa sér að það hefði verið rætt í kvöldfréttum!

 

Deila