Translate to

Fréttir

Hreyfitorg - hreyfing fyrir alla!

Virk starfsendurhæfingarsjóður hefur tekið þátt í þróun Hreyfitorgs sem er ný vefsíða sem er ætlað að veita góða yfirsýn yfir þá valkosti sem eru í boði á sviði hreyfingar á hverjum tíma, fyrir allan aldur, hvar sem er á landinu. Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig eða aðra að, t.d. ýmsu fagfólki, finna hreyfingu sem samræmist getu og áhuga hverju sinni.  Hreyfitorg er snjallvefur sem aðlagar sig sjálfkrafa að þeirri skjástærð sem er notuð hverju sinni. Uppbygging vefsins er með þeim hætti að úrræðin endurnýjast með reglulegum hætti sem ætti að minnka líkur á birtingu úreldra upplýsinga. Þjónustuaðilar sem bjóða upp á hreyfingu sem samræmist markmiðum Hreyfitorgs geta sótt um að kynna sína þjónustu á vefnum, sér að kostnaðarlausu.

Hægt er að fræðast nánar um Hreyfitorg á www.virk.is
Deila