Translate to

Fréttir

Hvar vorum við? Hvert stefnum við?

Um þessar mundir eru 10 ár liðin frá því að starfsmenntasjóðir vinnumarkaðarins tóku til starfa.

Í tilefni af því gangast Landsmennt og Starfsafl fyrir ráðstefnu og afmælishófi á Hótel Sögu 17. mars nk. kl. 14:00-17:00.

Leitast verður við að varpa ljósi á aðdraganda stofnunar sjóðanna, árangur þeirra þessi ár og litið til framtíðar varðandi hlutverk og stefnu.

Í samræmi við það er yfirskrift ráðstefnunnar: Hvar vorum við? Hvert stefnum við?


Dagskráin er eftirfarandi:

14:00-14:15   Upphaf og stofnun sjóðanna, Kolbeinn Gunnarsson; formaður Hlífar.

14:15-14:35   Starfsafl og Landsmennt; Höfum við gengið til góðs?  - Nýting sjóðanna; Kristín Njálsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson.

14:35-14:50   Viðhorf stéttarfélaga til fræðslu; Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags.

14:50-15:05   Fyrirtækin og fræðslan: Reynsla Íslenska Gámafélagsins af þjónustu fræðslusjóðanna; Jón Þórir Frantzson, forstjóri ÍGF.

15:05-15:20   Reynslusaga einstaklings, Berglind Freyja Búadóttir, nemandi í háskólabrú Keilis.

15:20-15:35   Þýðing starfsmenntasjóðs fyrir fræðslu Norðuráls, Brian Daniel Marshall, fræðslustjóri Norðuráli  Grundartanga ehf.

15:35-16:10   Pallborð; Framtíðarsýn og hlutverk fræðslusjóða.

Þátttakendur:  Jón Þórir Frantzson,forstjóri ÍGF, Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags, Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa, Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir, formaður AFLS Starfsgreinafélags.

16:10-17:00   Samvera og umræður ásamt tónlistaratriði.

 

Ráðstefnustjóri verður Maríanna Traustadóttir.

Deila