Hvar vorum við? Hvert stefnum við?
Um þessar mundir eru 10 ár liðin frá því að starfsmenntasjóðir vinnumarkaðarins tóku til starfa.
Í tilefni af því gangast Landsmennt og Starfsafl fyrir ráðstefnu og afmælishófi á Hótel Sögu 17. mars nk. kl. 14:00-17:00.
Leitast verður við að varpa ljósi á aðdraganda stofnunar sjóðanna, árangur þeirra þessi ár og litið til framtíðar varðandi hlutverk og stefnu.
Í samræmi við það er yfirskrift ráðstefnunnar: Hvar vorum við? Hvert stefnum við?
Dagskráin er eftirfarandi:
14:00-14:15 Upphaf og stofnun sjóðanna, Kolbeinn Gunnarsson; formaður Hlífar.
14:15-14:35 Starfsafl og Landsmennt; Höfum við gengið til góðs? - Nýting sjóðanna; Kristín Njálsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson.
14:35-14:50 Viðhorf stéttarfélaga til fræðslu; Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags.
14:50-15:05 Fyrirtækin og fræðslan: Reynsla Íslenska Gámafélagsins af þjónustu fræðslusjóðanna; Jón Þórir Frantzson, forstjóri ÍGF.
15:05-15:20 Reynslusaga einstaklings, Berglind Freyja Búadóttir, nemandi í háskólabrú Keilis.
15:20-15:35 Þýðing starfsmenntasjóðs fyrir fræðslu Norðuráls, Brian Daniel Marshall, fræðslustjóri Norðuráli Grundartanga ehf.
15:35-16:10 Pallborð; Framtíðarsýn og hlutverk fræðslusjóða.
Þátttakendur: Jón Þórir Frantzson,forstjóri ÍGF, Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags, Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa, Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir, formaður AFLS Starfsgreinafélags.
16:10-17:00 Samvera og umræður ásamt tónlistaratriði.
Ráðstefnustjóri verður Maríanna Traustadóttir.