Iðnaðarmenn samþykkja heimild verkfallsboðunar
Félög iðnaðarmanna sem eru með samstarf við endurnýjun á almenna kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar , Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ viðhöfðu allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um heimild til verkfallsboðunar.
Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.
Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44.6%
Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k
Já sögðu 75,1%
Nei sögðu 22,1%
Þeir sem ekki tóku afstöðu 2,8%
Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum, koma framangreind verkföll til framkvæmda.
Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar: sími 8620171
Guðmundur Ragnarsson, formaður VM: sími 8610020
Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ : sími 8563466