Translate to

Fréttir

Ísafjarðarbíó 90 ára - elsta starfandi bíóhús á Íslandi

Alþýðuhús Ísfirðinga við Norðurveg var reist árin 1934-35 af félögum í Verkalýðsfélaginu Baldri og Sjómannafélagi Ísfirðinga, undir forystu Hannibals Valdimarssonar og Eiríks Einarssonar. Hannibal hafði áður haft forystu um byggingu félagsheimis í Súðavík, þar sem hann tók að sér forystu í félagi verkamanna og sjómanna. Hann flutti til Ísafjarðar árið 1931 og skipaði sér þegar í forystusveit jafnarðarmanna. Hann varð formaður í Baldri árið eftir.

Fyrsti félagsfundur Baldurs í Alþýðuhúsinu var haldinn 27. október 1935, í veitingasal í kjallara, en um mánuði síðar þann 23. nóvember var fyrsta kvikmyndin, örkin hans Nóa, sýnd í bíósalnum. Hannibal hafði umsjón með byggingu hússins og var framkvæmdastjóri þess fyrstu árin. Húsið hefur síðan þjónað sem kvikmyndahús kaupstaðarins og var um áratugi helsta samkomuhús Ísfirðinga þar sem fóru fram leiksýningar, tónleikar, skemmtanir, samkomur félaga og pólitískir fundir.

Á þessum 90 árum hafa eingöngu fimm einstaklingar verið "bíóstjórar". Núverandi bíóstjóra Steinþór Friðriksson, Dúa þekkja allir á stór Ísafjarðarsvæðinu, en Dúi ásamt Gróu Böðvarsdóttur hafa séð um bíósýningar í Alþýðuhúsinu á Ísafirði í bráðum fjóra áratugi og sinnt því starfi af hugsjón og virðingu. 

Í tilefni dagsins bjóða þau Dúi og Gróa frítt í bíó kl.14 og 16 á meðan húsrúm leifir.

Deila