Translate to

Fréttir

KNH segir upp starfsfólki vegna stjórnvaldsaðgerða

Frá framkvæmdum KNH við Suðurstrandarveg Frá framkvæmdum KNH við Suðurstrandarveg

Verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði hefur ákveðið að segja upp 60 af 84 starfsmönnum nú um næstu mánaðarmót. KNH sendi starfsmönnum fyrirtækisins bréf fyrr í vikunni þar sem farið er yfir þá stöðu sem KNH stendur frammi fyrir.  Ástæða uppsagnanna  er sögð endurskipulagning á fyrirtækinu vegna nýtilkominna stjórnvaldsaðgerða í formi aukinnar skattpíningar og álögur á fyrirtæki ásamt algjöru verkefnafrosti. En KNH er stærsta fyrirtækið á Vestfjörðum í vega- og jarðvegsframkvæmdum og byggist starfsemi KNH nánast alfarið á þesskonar framkvæmdum.


Á  fundi með fulltrúum Verk Vest,trúnaðarmanni og framkvæmdarstjóra fyrirtækisins, komi í ljós að fyrirtækið sæi sér þann kost nauðugan að segja upp starfsfólki og fara í endurskipulagningu vegna boðaðra stjórnvaldsaðgerða.  Fyrirtækið sjái ekki fram á að geta haldið út óbreyttri starfsemi ef ekki verði farið í frekari vega- eða jarðvegsframkvæmdir mjög fljótlega. Stjórnvöld verði að halda áfram með þau verkefni sem þegar séu tilbúinn til útboðs, annars sé grundvöllur fyrir rekstri fyrirtækisins í núverandi mynd brostinn.
 

Verk Vest tekur undir með  áhyggjum KNH manna og telur að í því árfreði sem við stöndum nú frammi fyrir í efnahagsmálum dugi ekki að draga úr opinberum framkvæmdum. Atvinnulífið þarf á öflugri innspýtingu að halda til að getað haldið uppi öruggari atvinnu. Sú ráðstöfun að draga úr opinberum framkvæmdum í kreppu er alveg þveröfugt við það sem þarf að gera. Í kreppu er opinberum aðilum nauðsynlegt að halda úti framkvæmdum . Þannig styðji stjórnvöld við atvinnulíf í landinu sem þegar standi höllum fæti.  

Deila