Kjaramál og kaupmáttur !
Til fundarins eru sérstaklega boðaðir stjórnarmenn og trúnaðarmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði og Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur.
Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar með sérstakri áherslu á baráttuna við verðbólguna og stefnu og áherslur ASÍ í þeim efnum, sókn í atvinnumálum og hugmyndir ASÍ um nýtt húsnæðiskerfi.
Á fundinum mun liggja frammi upplýsingaefni/smárit um hvern efnisþátt fyrir sig.