Kjaramálafundur Verk Vest 10. september
Félagið stendur fyrir opnum kjaramálafundi á Hótel Ísafirði þriðjudaginn 10. september kl.18.30. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu félagsins eigi síðar en 6. september í síma 4565190 eða á postur@verkvest.is.
Boðið verður upp á ferðir frá Hólmavík og Patreksfirði ef næg þátttaka fæst.
Dagskrá:
- Kjaramál félagsmanna Verk Vest – undirbúningur fyrir komandi kjaraviðræður
Fundarhlé – léttur málsverður.
- Samningsumnboð Verk Vest til landssambanda ASÍ
- Kosning á þing SGS
- Önnur mál
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og hafa áhrif á kröfugerð félagsins.