Translate to

Fréttir

Kjarasamningarnir halda - SA nýtti sér ekki uppsagnarákvæði

Stjórnvöld verða líka að standa við sitt ! Stjórnvöld verða líka að standa við sitt !

Ljóst er að kjarasamningar munu halda og koma launahækkanir til framkvæmda þann 1. nóvember næst komandi. Taxtalaun á almennum markaði munu þá hækka um kr.6750 en um kr.8750 hjá skrifstofufólki og iðnaðarmönnum. Þeir sem eru á persónubundnum launum og hafa ekki fengið launahækkun munu fá 3,5% launahækkun hafi þeir ekki hækkað í launum á tímabilinu 1. janúar - 1.nóvember 2009 (launaþróunartryggingin). Helmingur ákvæðisvinnutaxta, kostnaðarliðum og fastákveðnum launa breytingum koma koma einnig til framkvæmda. Þá er vert að minna á að starfsmenn sveitarfélaga og starfmenn á ríkisstofnunum eiga einnig að hækka í launum um næstu mánaðarmót.  Þess má geta að unnið er að uppfærslu á kaupgjaldsskrá á heimasíðu félagsins.


Eftir erfiðar viðræður undanfarna daga var staða mála mjög tvísýn um miðjan dag og verulegar líkur á að til uppsagnar kæmi. Þegar líða tók á daginn tókst að þoka málum áfram og leit þetta ágætlega út um kvöldmatarleytið, þegar óvænt skilaboð bárust um lykilþætti yfirlýsingarinnar sem setti málið í óvissu á ný. Erfitt reyndist að finna flöt á málinu þar sem fjármálaráðherra var á leið til landsins og ekki hægt að ná í hann. Á ögurstundu rétt fyrri miðnætti var ljóst að ekki tókst að ná viðunandi lendingu við ríkisstjórnina sem við teldum ásættanlegan grunn að áframhaldandi samstarfi um stöðugleikasáttmálann. Þrátt fyrir þessa stöðu ákvað stjórn SA rétt fyrir miðnætti að nýta ekki uppsagnarákvæði okkar kjarasamninga og halda þeir því gildi sínu til loka nóvember árið 2010. Því mun koma til umsaminna launabreytinga 1. nóvember n.k. og 1. júní 2010.


Þess má geta að á lokametrunum tókst að einangra ágreining við ríkisstjórnina við eitt atriði yfirlýsingarinnar og hafa samtökin þegar óskað eftir viðræðum við ríkisstjórnina á morgun til að útkljá þennan ágreining, en vonir okkar standa til að orsökin sé aðallega vegna fjarveru ráðherra og tímaskorts. Ekki er hægt að fara nánar út í efni yfirlýsingarinnar að svo komnu máli.
Samninganefnd ASÍ fagnar því að tekist hefur að verja kjarasamninginn og treystir því að ásættanleg niðurstaða náist um framhald stöðugleikasáttmálans. Sjá ennfremur frétt af vef ASÍ.

Sjá einnig umfjöllun á BB.IS og á MBL.IS

Deila