Translate to

Fréttir

Kjarasamningum og réttindum launafólks má ekki víkja til hliðar

Ályktun formannafundar SGS 26. mars

"Til stéttarfélaga innan Starfsgreinasambandsins um land allt berast nú mikið af fyrirspurnum og athugasemdum vegna uppsagna, fyrirvaralausra breytinga á vaktafyrirkomulagi og fjölmargra annara atriða sem snúa að vinnufyrirkomulagi og réttindum fólks samkvæmt ákvæðum kjarasamninga.

Að gefnu tilefni ítrekar Formannafundur Starfsgreinasambandsins að allar breytingar á að vinna í fullu samráði við starfsfólk og skorar á atvinnurekendur að nýta sér ekki núverandi aðstæðurnar til að fara á svig við gildandi kjarasamninga og brjóta á réttindum launafólks. Slíkt framferði er algerlega óásættanlegt og verður mætt af fullum þunga af hálfu félaga innan SGS Starfsgreinasambands Íslands."

Deila