Kjörgögn vegna kjarasamninga starfsmanna á ríkisstofnunum hafa nú verið
send út samkvæmt kjörskrá fjársýslu ríkisins.
Þeir sem ekki hafa fengið send kjörgögn í pósti en telja að viðkomandi
eigi að vera á kjörskrá geta komið við á skrifstofu félagsins með launaseðil sem staðfestir kjörgengi og fengið
afhent kjörgögn ásamt kjörseðli. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi
Vestfirðinga eru hvattir til þess að nýta sinn rétt og kjósa um
samninginn í síðasta lagi föstudaginn 7. ágúst nk.