Kröfur sjómanna kynntar viðsemjendum
Fulltrúar Sjómannasambands Íslands (SSÍ) og Verkalýðsfélags Vestfirðinga komu saman í húsakynnum Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) á dögunum og kynntu kröfur sjómanna fyrir viðsemjendum. Á fundinum lögðu fulltrúar LÍÚ einnig fram kröfur útgerðarmanna gagnvart sjómönnum. Ekki var tekin ákvörðun um næsta samningafund aðila, en þessi fundur markar upphaf formlegra viðræðna á milli fulltrúa sjómanna og viðsemjenda. Þess má geta að núverandi kjarasamningur sjómanna gildir til 31. maí næst komandi.