LÍÚ heimilt að afla umboðs til boðunar verkbanns
Samtök atvinnulífsins hafa veitt LÍÚ heimild til að afla
umboðs frá aðildarfyrirtækjum til boðunar verkbanns á kjaradeilu þeirra við
aðildarsamtök sjómanna. Áður hafði
aðalfundur LÍÚ samþykkt að hefja undirbúning
á atkvæðagreiðslu um verkbann á kjaradeiluna sem enn er í hörðum hnút. En að loknum samningafundi aðila hjá
ríkissáttarsemjara í síðustu viku lýstu forsvarsmenn samninganefndar LÍÚ því
yfir að viðræður þeirra við aðildarsamtök sjómanna væru árangurslausar. En til að meiga boða verkbann þurfa viðræður
að hafa verið lýstar árangurslausar af hálfu vinnuveitanda.
Forsvarsmenn útgerðarinnar líta svo á að ekki verði hægt að halda
viðræðum áfram nema samtök sjómanna ljái
því máls að skoða breytingar á hlutaskiptakerfi sjómanna. Þessari meginkröfu
LÍÚ hafna samtök sjómanna með öllu og krefja útgerðina á móti um uppbætur á
persónuafslætti sjómanna. Frá þessu er einnig greint á heimasíðu SA.