Translate to

Fréttir

Loksins höggvið á hnútinn

Frá starfsmannafundi í Eyrarodda Frá starfsmannafundi í Eyrarodda
Gengið hefur verið frá kaupum Arctic Fish ehf. á eignum þrotabús Eyrarodda ehf. samkvæmt því sem fram kemur í fjölmiðlum. Hið nýja fyrirtæki mun með kaupunum eignast nánast öll vinnsluhús þrotabúsins ásamt línubátnum Stjána Ebba.  Verkalýðsfélag Vestfirðinga fagnar því að loksins skuli hafa tekist að höggva á hnút þeirrar óvissu sem málefni fiskvinnslu á Flateyri hefur verið í undanfarna 8 mánuði. Hið nýja fyrirtæki, sem er einn af aðaleigendum fiskeldisfyrirtækisins Dýrfisks, hefur í hyggju að byggja starfsemina á vinnslu á eldisfiski ásamt að vinna úr þeim sjávarafla sem mun berast á land á Flateyri. Samkvæmt heimildum RÚV er haft eftir Sigurði Péturssyni forstjóra Arctic Fish ehf. að þeir muni fara rólega af stað og verði um 4 - 5 störf að ræða í byrjun.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga fagnar því að loks hafi verið höggvið á hnút óvissu í atvinnumálum Flateyringa en minnir jafnframt á að meira þurfi að koma til svo unnið verði á því atvinnuleysi sem nú er á Flateyri. Í því samhengi er rétt að minna á að þegar best lét hjá Kambi ehf. voru um 120 manns við veiðar og vinnslu. En verum þess minnug að Róm var ekki byggð á einum degi.  Það er því von félagsins að vel gangi með uppbyggingu á vinnslu og veiðum hjá hinu nýja fyrirtæki, þannig að með tímanum verði hægt að tryggja sem flestum atvinnuleytendum á Flateyri vinnu áður en langt um líður. Verk Vest væntir mikils af samstarfi við Arctic Fish ehf. og býður þá velkomna til áframhaldandi atvinnuuppbyggingar á Vestfjörðum.
Deila