Translate to

Fréttir

Megináherslur Starfsgreinasambandsins afhentar samninganefndum ríkis og sveitarfélaga

Kröfugerðir samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands f.h. aðildarfélaga sinna voru kynntar samninganefndum ríkis og sveitarfélaga í dag og í gær.  Samninganefnd Starfsgreinasambandins vill stuðla að stöðugleika svo að takast megi að auka kaupmátt, skapa ný störf og létta á böli atvinnuleysisins og þeim fjárhagsvanda sem fjölskyldur í landinu glíma við. Almennar launahækkanir verða að koma til framkvæmda strax og gerð er krafa um 200.000 króna lágmarkslaun.

Formaður og jafnfram talsmaður samninganefnda vegna kjarasamninga við ríki og sveitarfélög er Signý Jóhannesdóttir, formaður sviðs starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Nánar er sagt frá áherslum á vef SGS.

Deila